fbpx
booking(a)hotelork.is

Skilmálar

Almennar upplýsingar

Skilmálar gjafabréfa

Vinsamlegast athugaðu hvort réttar upplýsingar komi fram á gjafabréfinu.

Þegar gjafabréf er keypt í gegnum vefinn eða síma, getur viðkomandi fallið frá kaupum og óskað eftir endurgreiðslu innan 14 daga frá miðakaupum sbr. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga.

Ef gjafabréf er keypt á viðburð sem er haldinn innan 14 daga frá kaupum á gjafabréfi á kaupandi hinsvegar í engum tilfellum rétt á endurgreiðslu á gjafabréfinu. Að auki á kaupandi engan rétt til þess að skipta gjafabréfinu út fyrir annan viðburð á vegum seljanda, sbr. 10. gr. áðurnefndra laga, nema þegar viðburðurinn fellur niður.

Ef viðburður eða viðburðardagsetning fellur niður verður eigendum gjafabréfanna boðin önnur dagsetning ef úr öðrum dagsetningum er að velja. Eigendum gjafabréfanna býðst að fá gjafabréf sín endurgreidd ef þeir komast ekki á breytta dagsetningu. Endurgreiðslubeiðnir skulu berast á bokun@hotelork.is eigi síðar en 28 dögum eftir dagsetningu viðburðar sem féll niður.

Geymdu gjafabréfið þitt á öruggum stað, eins og um fjármuni væri að ræða.

Hótel Örk ber enga ábyrgð á persónulegum munum gjafabréfaeigenda fyrir, á meðan, eða eftir að viðburði lýkur.

Innritun & Útritun

Innskráning: frá kl. 15:00. Útritun: fram til kl. 11:00.

Afbókun

Afpöntunar- og fyrirframgreiðsluskilmálar eru breytilegir eftir herbergistegund. Afbókun einstaklings verður að hafa borist skriflega innan 24 tímum fyrir komutíma. Ef afbókað er með styttri fyrirvara þarf að greiða fyrir eina gistinótt. Sama gildir um no show. Vinsamlegast hafið samband við hótelið til að fá ítarlegri upplýsingar.

Upplýsingar um morgunverð

Grænmetis, vegan, glútenlaus, hlaðborð.

Gæludýr

Gæludýr eru ekki leyfð á hótelinu.

Greiðslukort

Visa, Maestro, JSB, Euro/Mastercard, Discover Card Diners Club og American Express. Hótel Örk áskilur sér þann rétt til að taka frá upphæð tímabundið af greiðslukortinu þínu fyrir komu.

Öryggismál

Markmiðið Hótel Arkar er að leggja áherslu á áreiðanleika og öryggi með ábyrgum rekstri. Öryggisstefna fyrirtækisins er mótuð út frá lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustu og öryggi starfsmanna og öryggishandbók fyrir gististaði, veitingastaði og skemmtistaði sem gefin er út af SAF.

Börn og aukarúm

Öll börn yngri en 2 ára dvelja án greiðslu í barnarúmi. Eitt barn yngra en 12 ára dvelur án greiðslu þegar notuð eru rúm sem eru til staðar. Fyrir öll börn yngri en 12 ára er innheimt aukagjald fyrir nótt í aukarúmi. Fyrir eldri börn eða fullorðna er einnig innheimt aukagjald fyrir nótt í aukarúmi. Gjaldið fer eftir gjaldskrá hótelsins hverju sinni.

Óskilamunur finnst í herbergi eða á almennu rými

Hótel Örk geymir óskilamuni í 3 mánuði. Vinsamlegast hafið samband við hótelið.

Mikill farangur

Ertu með mikinn farangur? Ekkert mál, við aðstoðum þig við að bera upp farangurinn gegn smá aukagjaldi.

Öryggiseftirlit

Öryggismyndavélaupptaka er í gangi á almennum rýmum hótelsins, sundlaugarsvæði, afgreiðslustöðvum, vörumóttöku og í eldhúsi. Upptökur eru vistaðar 12 vikur aftur í tímann. Tilgangur öryggismyndavéla er almenn öryggis- og eignavarsla.

Þjófnaður

Allur þjófnaður er kærður til lögreglu.

Herbergjauppfærsla

Við getum boðið upp á herbergjauppfærslu gegn smá aukagjaldi svo lengi sem við eigum laus herbergi.

Umhverfisstefna

Hjálpaðu okkur að varðveita nárrúruauðlindir Íslands. Við erum umhverfisvænt hótel og stuðlum ávallt að því að okkar „kolefnisfótspor“ séu minnst. Með ykkar hjálp getum við gert enn betur. Markmið Hótel Arkar er að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum, með því að halda neikvæðum umhverfisáhrifum af starfseminni í lágmarki. Sjálfbær þróun er höfð að leiðarljósi í allri starfsemi hótelsins.

Hyggst þú dvelja í fleiri en eina nótt hjá okkur? Þá hefur þú möguleika á því að segja nei takk við þrifum og þ.a.l. hjálpað okkur að lágmarka umhverfisáhrif. Ef þú óskar eftir því að herbergið verði ekki þrifið þá máttu endilega láta okkur vita. Annað hvort með því að hafa samband við móttöku eða í gegnum Pop-up skilaboð sem birtast á SuitePad skjánum þínum milli kl 21:00 og 24:00.

Ef þér stendur á sama að nota sömu handklæðin í einhverja daga þá mælum við með að hengja þau ávallt upp svo að þernur hótelsins skilji að þú þurfir ekki skipti.

Stillingar á vafrakökum:

Á þessu vefsvæði eru notaðar vafrakökur til þess að tryggja bestu mögulegu upplifun notenda.

Notkun á vafrakökum

Vafrakökur (e. Cookies) eru litlar textaskrár sem vistast í tölvu notandans. Þær eru notaðar til þess að bera kennsl á notendur og til að greina heimsóknir á vefsíðuna okkar.

Notkun á vafrakökum gerir okkur kleift að fylgjast með hvernig notendur nota síðuna og hvernig við getum aðlagað vefinn betur að þörfum þeirra. Við hverja komu inn á vefinn er skráður tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vefsíðu er komið, tegund vafra og stýrikerfi. Hótel Örk notar gögn sem safnað er með t.d. Google Analytics til þess að bæta þjónustu okkar. Vafrakökur innihalda sjaldnast eða aldrei einhverjar persónuupplýsingar um notendur.

Sumar vafrakökur eru nauðsynlegar fyrir virkni vefsvæða og koma m.a. í veg fyrir árasir tölvuþrjóta. Tímabundnar vafrakökur eyðast þegar notandi fer af vefsvæði og eru því ekki vistaðar til lengri tíma en aðrar vafrakökur hafa lengri gildistíma.
Notendur geta stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu. Athuga skal að ef lokað er á allar kökur, mun það að öllum líkindum hafa áhrif á virkni síðunnar.

Markhópagreining

Vafrakökur fyrir markaðssetningu eru notaðar til að safna upplýsingar um hegðun notanda til að geta birt viðeigandi uppýsingar.

Meðferð á hótel Arkar persónuupplýsingum

Þær persónuupplýsingar sem kunna að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við ákvæði laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.

Viltu spyrja einhvers um vefkökur og persónuupplýsingar? Hafðu þá samband við okkur í gegnum booking@hotelork.is eða sent okkur fyrirspurn hér.

Hótel Örk – Örkin Veitingar ehf
Breiðumörk 1c, 810 Hveragerði
Kennitala: 710398-2919
VSK Númer: 82812