Hagnýtar upplýsingar
Hér fyrir neðan er hægt að lesa hagnýtar upplýsingar.
-
Herbergisþrif
Við viljum að dvöl þín verði eins þægileg og róleg og kostur er, því munum við aðeins þrífa herbergið þitt ef þú óskar þess.
-
Morgunmatur
Morgunverður er opinn alla daga frá 07:00 – 10:00.
-
HVER Restaurant
Kíktu við í ljúffengan mat á HVER Restaurant í Hveragerði. Vandaður og fjölbreyttur matseðill í hlýlegu umhverfi. Borðapantanir í móttöku.
-
Sundlaugarsvæðið
Sundlaugin er eingöngu opin fyrir gesti hótelsins og er hún opin milli 07:00 – 22:00 daglega.
-
Móttakan og aðstaðan
Móttakan er opin alla daga, 24 tíma sólarhrings. Til þess að hringja í gestamóttökuna veljið nr 1000. Í móttöku er sérvalin gjafavara til sölu ásamt drykkjum, sælgæti og snakki. Gestir hafa aðgang að útisundlaug með heitum pottum, gufubaði, 6 holu golfvelli og afþreyingarherbergi.
-
Innritun og útritun
Innritun er eftir kl 15:00. Ef óskað er eftir innritun fyrir kl 15, má bóka það í tengli sem er sendur gestum með uppfærslu möguleikum og viðbótar þjónustu eða í tölvupósti á bokun@hotelork.is Á brottfarardegi þarf að rýma herbergið fyrir kl. 11:00. Ef óskað er eftir seinni útskráningu, má bóka það í tengli sem er […]
-
Reykingar
Reykingar og rafrettur eru stranglega bannaðar og eru ekki leyfðar við inngang hótelsins, sundlaugarsvæði, nálægt herbergjagluggum, á svölum, á pöllum, í herbergjunum og innandyra. Sekt við reykingum er 30.000 kr.
-
Sjónvarp og útvarp
Á hótel Örk er margt hægt að sjá og heyra. Í sjónvörpunum í herbergjunum eru 16 sjónvarpsstöðvar og nokkrar útvarpsstöðvar.
-
Verðmæti
Við getum ekki tekið ábyrgð á fjármunum eða öðrum verðmætum sem geymd eru í herbergjum.