fbpx
booking(a)hotelork.is

Nýjasta nýtt – hótel Örk

Í nýbyggingu við hótel Örk sem opnaði í sumar eru meðal annars tvær glæsilega 55 fermetra svítur á efstu hæð og eru þær með frábærum hornsvölum og horngluggum.

Þaðan er einstakt útsýni í tvær áttir auk þess sem það er stór þakgluggi beint fyrir ofan rúmið sem gerir gestunum kleift að njóta þess að horfa á stjörnubjartan himininn og vonandi norðurljósin án þess að yfirgefa rúmið. Svíturnar eru tilvaldar fyrir brúðhjón eða bara aðra sem vilja gera vel við sig.

Með tilkomu viðbyggingarinnar samanstendur nú hótelið nú af 157 herbergjum og eftir sem áður er það áfram með sjö fundar- og veislusali ásamt veitingastað, sundlaug og heitum pottum. Hótel Örk er nú fjögurra stjörnu hótel og er þ.a.l. orðið eitt stærsta hótel landsbyggðarinnar.

Í nýju byggingunni eru 78 glæsilega hönnuð herbergi og er lögð áhersla á nútímalega hönnun ásamt öllum helstu þægindum sem hótelgestir þurfa. Nýju herbergin eru allt frá tveggja manna herbergjum að svítum. Superior herbergin eru rúmgóð og björt með glugga sem ná alveg niður til gólfs og hámarka þannig birtuna auk þess sem gestir geta notið enn betur útsýnisins. Junior svíturnar eru frábær kostur fyrir fjölskyldur eða þá sem vilja aðeins betra pláss. Allar Junior svíturnar eru með svölum eða smá palli fyrir framan.

Hönnun og útlit viðbyggingarinnar var í höndum T.ark sem hefur mikla reynslu í hönnun hótela.

Ljósmyndir á veggjum í nýju herbergjunum eru eftir Ingimar Þórhallsson listamann og ljósmyndara frá University of the Arts London en þær eru af hverasvæðum sem hentar sérstaklega vel við umhverfi hótel Arkar.

Vertu velkomin á hótel Örk.


(+354) 483 4700

|

Tourist TV